Vestmannaeyjabær, óskar eftir tilboðum í vinnu við endurnýjun á útveggjaklæðningu o.fl. á húseigninni Heiðarvegur 14, í Vestmannaeyjum, samkvæmt útboðslýsingu.
Verkinu á að ljúka eigi síðar en 6. júlí 2007.
Tilboðum skal skila í Þjónustumiðstöð Vestmannaeyja að Heiðarvegi 14, en tilboðin verða opnuð þar, þriðjudaginn 13. febrúar 2007, kl. 10.15.
Merkja skal tilboðin: ?Þjónustumiðstöð, veggklæðning o.fl. - tilboð."
Útboðsgögn er hægt að nálgast hjá rekstrarstjóra Þjónustumiðstöðvar Vestmannaeyja að Heiðarvegi 14, Vestmannaeyjum.
Umhverfis- og framkvæmdasvið