Starfið felst í umönnun og stuðningi við fatlað fólk. Leitað er að jákvæðum og áhugasömum einstaklingum sem sýna starfinu og heimilismönnum virðingu. Þekking og reynsla við vinnu á Sambýli er æskileg en ekki skilyrði. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og skila inn hreinu sakavottorði áður en þeir hefja störf. Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey/Drífanda. Starfsmaður á helgarvöktum þarf að geta hafið störf í apríl.
Umsóknarfrestur er til 30. mars nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Ráðhúss (Landsbankinn, 2. Hæð) og ber að skila umsóknum þangað. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Forstöðukona: ingibjorg @vestmannaeyjar.is, s: 6903497????