Fara í efni
17.11.2021 Fréttir

Þjónustuíbúð við Eyjahraun

Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til umsóknir þjónustuíbúð fyrir eldri borgara við Eyjahraun 1.

Deildu

Íbúðin er ætluð einstaklingi sem þarf meiri stuðning og aðstoð en hægt er að veita í heimahúsi en heilsufar ekki orðið það slæmt að þörf er fyrir hjúkrunarrými. Grundvallarþættir mats fyrir þörf á þjónustuíbúð eru líkamlegt og andlegt heilsufar umsækjanda.

Íbúðin er 46,8 fermetri. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ. Að auki greiða leigjendur þjónustugjald sem m.a. innifelur öryggiskerfi, þjónustu yfir daginn virka daga, kvöld-og helgarinnlit, mat og aðstoð við þvotta og þrif.

Umsóknarfrestur er til 26 nóvember nk.

Hægt er að sækja rafrænt um í íbúagátt Vestmannaeyjabæjar hér. Þar er hægt að velja umsókn um félagslegt leiguhúsnæði. Inni á eyðublaðinu er valið þjónustuíbúðir fyrir eldri borgara. Einnig er hægt að nálgast eyðublað hjá Fjölskyldu og fræðslusviði að Kirkjuvegi 23. Umsóknum þarf að fylgja læknisvottorð.

Nánari upplýsingar veitir Kolbrún Anna Rúnarsdóttir í síma 488 2607 eða á netfanginu:  kolla@vestmannaeyjar.is.