Þjónustuíbúð eru ætluð þeim einstaklingum sem þurfa meiri stuðning og aðstoð en hægt er að veita í heimahúsi en heilsufar ekki orðið það slæmt að þörf er fyrir rými á stofnun. Grundvallarþættir mats fyrir þörf á þjónustuíbúð eru líkamlegt og andlegt heilsufar umsækjanda.
Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ. Að auki greiða leigjendur fyrir þjónustupakka, sem m.a. innifelur í sér öryggiskerfi og dagþjónustu frá Hraunbúðum.
Umsóknarfrestur er til 24. október nk. Sótt er um rafrænt inn á Mínar síður á vestmannaeyjar.is en einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublað í þjónustuveri Fjölskyldu -og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23. Umsóknum og fylgigögnum skal einnig skilað þangað. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir, í síma 488-2000 eða á netfanginu margret@vestmannaeyjar.is.
