Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026.
Kjörfundur
Kjörfundur í Vestmannaeyjum stendur yfir frá kl. 9:00–22:00 á kjördag.
Kjörstaður er í Barnaskóla Vestmannaeyja.
Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum á kjörstað.
Kjörstjórn
Yfirkjörstjórn í Vestmannaeyjabæ skipa:
Jóhann Pétursson, Ólafur Elísson og Þór Vilhjálmsson.
Aðsetur yfirkjörstjórnar er á kjörstað í Barnaskóla, á meðan kjörfundur stendur yfir. Talning atkvæða fer fram á kjörstað og hefst talning kl . 22:00
Kosning utan kjörfundar
Þeir sem ekki geta kosið á kjördag geta kosið utan kjörfundar hjá sýslumanni eða erlendis.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst 17. apríl 2026.
Nánar um kosningu utan kjörfundar
Kjörskrá
Hægt er að finna upplýsingar um kjörstað og kjördeild með því að slá inn kennitölu á vef Þjóðskrár.
Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag.
Hér ættu einnig að birtast upplýsingar um kjörstað og kjördeild. Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili þrem vikum fyrir kjördag.
Flutningur lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá.
Smelltu hér til að finna þína kjördeild
Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár Íslands.
Framboð
Í framboði eru þrjú framboð. Þau eru : Eyjalistinn, Miðflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn.