Sundlaugin í Vestmannaeyjum var loksins opnuð á ný í gær eftir marga mánaða lokun, en á meðan lokun stóð ð fór fram yfirgripsmikil endurskoðun á öllum stýri- og hreinsibúnaði laugarinnar. Unnið var að því að tryggja að allur búnaður væri í toppstandi áður en opnað yrði aftur, og lauk því verki nú í lok mars.
Í tilefni af enduropnuninni var boðið upp á kaffi og köku fyrir sundlaugagesti. Fjölmargir ánægðir Eyjamenn lögðu leið sína í laugina og nutu þess að komast loksins aftur í sund eftir langa bið. Stemningin var létt og góð, og margir lýstu yfir létti og gleði að komast aftur í sína daglegu eða vikulegu rútínu.
Starfsfólk sundlaugarinnar tók á móti gestum brosandi og ánægju mátti merkja bæði hjá starfsfólki og sundfólki yfir því að loksins væri hægt að opna dyrnar á ný.
Takk fyrir þolinmæði á meðan unnið var að endurbótum, hlökkum til að sjá ykkur í sundi.


