Fara í efni
22.10.2026 Tilkynningar

Sundlaugin opnar aftur kl. 06:30 á föstudagsmorgun

Deildu

Sundlaugin hefur verið lokuð miðvikudag og fimmtudag vegna útskipta á flæðinema í jöfnunarkari. Vinna við verkið hófst á miðvikudagsmorgun og hafa framkvæmdir gengið vel.

Upphaflega var stefnt að því að opna sundlaugina aftur síðdegis á fimmtudag, en vegna lokafrágangs verður hún ekki opnuð fyrr en kl. 06:30 á föstudagsmorgun.

Heitu pottarnir og útisvæðið hafa verið opin að venju á meðan á framkvæmdum hefur staðið.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að hafa valdið gestum sundlaugarinnar.

Við hlökkum til að taka á móti gestum á ný á föstudagsmorgun, þegar allar laugar verða opnar að nýju.