Unnið er á dag – kvöld- og helgarvöktum. Í starfinu felst m.a baðvarsla, sundlaugarvarsla, hreingerningar, afgreiðsla, þjónusta við Týsheimili og Eimskipshöll o.fl. Laun góð þar sem um vaktavinnu er að ræða. Leitað er að traustum starfsmönnum með góða þjónustulund sem eiga gott með að umgangast börn jafnt sem fullorðna. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, standast hæfnispróf sundstaða og skila inn saka- og heilbrigðisvottorði áður en þeir hefja störf. Frekari upplýsingar um hæfniskröfur fást hjá forstöðumanni. Viðkomandi þarf helst að geta unnið frá lokum maí og að minnsta kosti fram yfir miðjan ágústmánuð.
Framlengdur umsóknarfrestur er til 16. mars nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Ráðhúss og ber að skila umsóknum þangað. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 488-2401 og 694-2456. Einnig á netfangið arnsteinn@vestmannaeyjar.is Íþróttamiðstöðin Vestmannaeyjum