Leitað er að jákvæðum, duglegum og samviskusömum einstaklingum. Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni til að sækja um laus störf.
Almennar upplýsingar veitir Erna Georgsdóttir hjá Vestmannaeyjabæ í síma 488-2000 eða í tölvupósti: sumarstorf@vestmannaeyjar.is
Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar.
Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.
Störf í boði:
Bókavörður I - Bókasafn
Flokkstjóri í vinnuskóla - Umhverfisverkefni
Hafnarvörður I - Vestmannaeyjahöfn
Hafnarverkamaður - Vestmannaeyjahöfn
Leiðbeinandi - Heimaey vinnu- og hæfingarstöð
Leikskólakennari/leiðbeinandi - Kirkjugerði
Leikskólakennari/leiðbeinandi - Víkin
Safnvörður I - Eldheimar
Safnavörður I - Sagnheimar (Byggðasafn/Landlyst)
Starfsmaður í þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Málefni aldraðra og fatlaðra
Sumarstarfsmaður - Umhverfisverkefni
Sundlaugarvörður/starfsmaður í Íþróttamiðstöð - Íþróttamiðstöð
Verkamaður II - Umhverfisverkefni
Verkamaður III - Umhverfisverkefni
