Samkvæmt samþykktinni verða leikskólarnir lokaðir frá 8. júlí til 10. ágúst 2027 og opna aftur klukkan 10 þann 11. ágúst.
Árið 2028 verður sumarlokunin frá 12. júlí til 14. ágúst og leikskólarnir opna aftur klukkan 10 þann 15. ágúst. Á fundinum komu jafnframt fram hugmyndir um aukinn sveigjanleika í sumarlokun leikskólanna.
Fræðsluráð samþykkti að afla frekari upplýsinga, meðal annars umsagnar leikskólastjórnenda, reynslu af fyrra fyrirkomulagi og kostnaðarmats, áður en tekin verður afstaða til mögulegra breytinga.
„Við viljum tryggja að skipulag sumarlokana taki mið af þörfum barna og fjölskyldna, starfsfólks og gæðum leikskólastarfsins. Með því að ákveða dagsetningar tímanlega auðveldum við fjölskyldum að skipuleggja sumarleyfi sín. Jafnframt er mikilvægt að vera opin fyrir nýjum leiðum sem geta aukið sveigjanleika þjónustunnar í framtíðinni,“ segir Aníta Jóhannsdóttir, formaður fræðsluráðs.
Ákvörðun um sumarlokun árið 2027 stendur, en mögulegt verður að endurskoða fyrirkomulag ársins 2028 ef niðurstöður faglegrar og fjárhagslegrar skoðunar gefa tilefni til þess.
13.11.2026
Fréttir
Sumarlokun leikskóla ákveðin með góðum fyrirvara – sveigjanleiki áfram til skoðunar
Fræðsluráð Vestmannaeyja hefur samþykkt dagsetningar sumarlokunar leikskólanna fyrir árin 2027 og 2028. Með ákvörðuninni er lögð áhersla á að skapa aukinn fyrirsjáanleika fyrir foreldra, starfsfólk og starfsemi leikskólanna.