Fara í efni
21.06.2006 Fréttir

Sumarhátíð leikskólanna 21.júní 2006

Sameiginleg sumarhátíð barna og starfsfólks á leikskólunum Rauðagerði, Kirkjugerði og Sóla hófst í dag kl.10:00 með skrúðgöngu. Lögreglan og trumbusláttur verður í fararbroddi frá Barnaskólanum og niður á Stakkó. Á sumarhátíðinni verðu
Deildu

Sameiginleg sumarhátíð barna og starfsfólks á leikskólunum Rauðagerði, Kirkjugerði og Sóla hófst í dag kl.10:00 með skrúðgöngu. Lögreglan og trumbusláttur verður í fararbroddi frá Barnaskólanum og niður á Stakkó.

Á sumarhátíðinni verður byrjað á því að öll börnin syngja saman 3 lög en síðan verður boðið upp á ýmsar leikjastöðvar eins og krokket, skíðagöngu, húlahopp, bandastultur, fallhlífar, popp veiði og grillaðar pylsur. Andlitsmálun verður í boði fyrir alla sem vilja og einnig munu félagar úr götuleikhúsinu láta sjá sig..

Þessi hátíð er árlegur viðburður hér í miðbænum og hefur alltaf tekist sérlega vel.

Krakkar úr vinnuskólanum aðstoða okkur við ýmsa vinnu auk margra annarra sem koma að undirbúningi.

f.h. Fræðslu og menningarsviðs
Guðrún Helga Bjarnadóttir,leikskólafulltrúi