
Nú styttist í að skráning fyrir Sumarfjör Vestmannaeyjabæjar fari af stað en í ár verða fimm vikur í boði fyrir börn fædd 2016-2019. Eins og síðustu tvö ár verða þemaskiptar vikur með leikjum, íþróttum, tómstundum, sprelli og fjöri í samvinnu við íþrótta- og tómstundafélög bæjarins.
Hægt er að velja um hálfan dag, þá frá kl. 9:00-12:00 eða kl. 13:00-16:00, og heilan dag frá kl. 9:00-16:00
Skráning í Sumarfjörið hefst á Sumardaginn fyrsta þann 23. apríl og fer hún fram í gegnum Abler. Síðasti dagur til að skrá barn er kl. 12 að hádegi föstudags í vikunni áður.
Við bendum á að börn með lögheimili í Vestmannaeyjum eru i forgangi en öllum er velkomið að skrá.