Í dag fögnum við sumardeginum fyrsta og viljum við hjá Vestmannaeyjabæ óska öllum íbúum gleðilegs sumars. Með bjartari dögum og hlýrra lofti tekur við skemmtilegur tími þar sem samfélagið lifnar við og fjölbreyttir viðburðir framundan.
Við minnum á dagskrá Barnamenningardaga sem nú standa yfir. Þar er boðið upp á fjölbreytta og skemmtilega viðburði fyrir börn og fjölskyldur, frábært tækifæri til að njóta samveru og menningar í heimabyggð.
Einnig er ánægjulegt að tilkynna að rennibrautirnar á útisvæði sundlaugarinnar eru nú opnaðar. Það er því tilvalið að skella sér í sund og njóta útiveru með fjölskyldunni.
Við hvetjum alla til að taka þátt, njóta dagsins og taka vel á móti sumrinu.
