Umsóknarfrestur er til 20. mars 2006 |
Upplýsingar veitir Líney Árnadóttir í síma 455 4200 og á netfanginu: liney.arnadottir@svm.is
Heildar fjárhæð til úthlutunar er 25.000.000.
Af vef Vinnumálastofnunar http://www.vinnumalastofnun.is/atvinnumal-kvenna/styrkir-til-atvinnumala-kvenna/
Við styrkúthlutun verður eftirfarandi haft að leiðarljósi:
- Styrkhæf verkefni skulu vera í eigu kvenna (a.m.k. 50%) og stjórnað af konum.
- Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
- Um nýnæmi sé að ræða.
- Viðskiptahugmynd sé vel útfærð, markmið séu skýr og leiðirnar að þeim.
- Verkáætlun sé raunhæf.
- Kostnaðar og tekjuáætlun sé vönduð, skýr og trúverðug.
- Að verkefnið sé arðbært.
- Allar atvinnugreinar standa jafnt að vígi við val.
- Konur á Íslandi geta sótt um þennan styrk.
- Að verkefnið skekki ekki samkeppnisstöðu á vinnumarkaði.
- Veittir verða stofnstyrkir og þróunarstyrkir.
- Stofnstyrkir eru styrkir til stofnunar fyrirtækis og kaupa á vélum og tækjum.
- Þróunarstyrkir eru veittir til hönnunar, þróunar og markaðssetningar.
- Styrkir nemi að jafnaði 500.000 - 1.000.000 kr.
- Framlag ríkisins til þeirra sem styrk hljóta nemur 50% af framlögðum styrkhæfum kostnaði.
Vinsamlega athugið að ekki eru veittir styrkir til :
- Ekki eru veittir styrkir til verkefna þar sem styrkveiting gæti skekkt samkeppnisstöðu gagnvart aðila í hliðstæðum atvinnurekstri
- Ekki eru veittir rekstrarstyrkir.
- Ekki eru veittir styrkir til afmarkaðra verkefna sem ekki eru atvinnuskapandi til frambúðar.
- Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem njóta greiðslna úr almannatryggingakerfinu.
- Ekki eru veittir styrkir til menntunar.
- Ekki eru veittir styrkir til húsnæðis eða endurbóta á húsnæði.
Umsækjendum er eindregið ráðlagt að leita rágjafar við gerð umsóknar.
Atvinnuráðgjafar atvinnuþróunarfélaga veita ráðgjöf og upplýsingar við gerð umsókna.
| Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða | (www.atvest.is) |
Atvinnuþróunarfélag Norðurlands vestra | (www.ssnv.is) |
| Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar | (www.afe.is) |
| Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga | (www.atthing.is) |
| Þróunarstofu Austurlands | (www.austur.is) |
| Atvinnuþróunarsjóð Suðurlands | (www.sudur.is) |
| Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum | (www.sss.is) |
| Atvinnuráðgjöf Vesturlands | (www.ssv.is) |
Einnig er bent á Impru nýsköpunarmiðstöð en þar er boðið upp á handleiðslu fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Á heimsíðu Impru er einnig hægt að nálgast ýmiskonar fræðsluefni um stofnun og rekstur fyrirtækja. Sjá www.impra.is.
Umsóknarferli
- Umsóknir eru sendar inn rafrænt af heimasíðu Vinnumálastofnunar fyrir 20. mars.
- Sérstök ráðgjafanefnd á vegum félagsmálaráðherra metur umsóknir og leggur tillögur sínar fyrir félagsmálaráðherra.
- Sé umsókn ófullnægjandi eða umbeðnum gögnum ekki skilað fyrir auglýstan umsóknarfrest áskilur ráðgjafahópurinn sér rétt til að hafna umsókn á þeim forsendum.
- Stefnt er að því að ákvarðanir um styrkveitingar liggi fyrir í lok maí.
- Öllum umsóknum verður svarað skriflega.
Um styrki til atvinnumála kvenna
Frá árinu 1991 hefur sérstöku fjármagni verið veitt til eflingar atvinnumála kvenna og hefur félagsmálaráðuneyti annast þessar styrkveitingar. Frá árinu 1997 hefur Vinnumálastofnun annast umsýslu með verkefninu.
Tilgangur styrkveitinganna er einkum að:
- auka fjölbreytni í atvinnulífi
- viðhalda byggð um landið og efla atvinnutækifæri á landsbyggðinni
- auðvelda aðgang kvenna að fjármagni
- draga úr atvinnuleysi meðal kvenna
Sérstakur ráðgjafahópur fer yfir umsóknir og leggur tillögur sínar fyrir félagsmálaráðherra.
Eldri úthlutanir
Styrkir vegna atvinnumálakvenna árið 2005 (pdf)
Styrkir vegna atvinnumála kvenna árið 2004 (pdf)
Styrkir vegna atvinnumála kvenna árið 2003
Styrkir vegna atvinnumála kvenna árið 2001
Styrkir vegna atvinnumála kvenna árið 2000
Styrkir vegna atvinnumála kvenna árið 1999