Á gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir stækkun byggingarreits á lóðinni til austurs. Vinnslutillaga að breyttu deiliskipulagi gerir ráð fyrir að húsnæði við Strandveg 63 geti verið allt að 4 hæðir í stað 2 hæða. Gert er ráð fyrir að 4 hæð sé inndregin að hluta og fyrir að uppbrot sé á norður og norð-vestur hliðum hússins. Skilmálar eru fyrir atvinnustarfsemi á jarðhæð en á 2-4 hæð geta verið allt að sex íbúðir.
Opið hús verður hjá skipulagsfulltrúa dagana 15.-17. júní milli 10:00 og 12:00 en einnig er hægt að bóka tíma samkvæmt samkomulagi.
Gögn vegna málsins má finna á Skipulagsgátt HMS mál nr. 728/2026 og á út prentuðu formi í afgreiðslu Ráðhúss.
Umsagnir skulu berast í gegnum Skipulagátt HMS og er umsagnarfrestur til og með 29. júní 2026.

