Fara í efni
03.07.2019 Fréttir

Stórtónleikar Vestmannaeyjabæjar

Deildu
Viðbótarmiðar á seinni tónleikana og enn nóg af miðum á fyrri tónleikana

 

Áhugi á stórtónleikunum í boði Vestmannaeyjabæjar á föstudagskvöldið hefur farið fram úr björtustu vonum. Sérstaklega á tónleikana kl. 21.00 og er svo komið að allir miðar sem farnir voru í dreifingu eru búnir þrátt fyrir að bætt hafi verið við miðum. Vegna ásóknar hefur afmælisnefndin ákveðið að setja alla miðana á seinni tónleikana í dreifingu. Hægt verður að nálgast miða í Íþróttamiðstöðinni frá kl. 17.00  í dag, miðvikudag. Engir miðar verða því í boði við dyrnar á seinni tónleikana á tónleikadegi eins og áður var búið að tilkynna.

 

Meira er eftir af miðum á fyrri tónleikana kl. 18.00 , en vakin er athygli á að um er að ræða sömu dagskrá. Það ætti því ekki að skipta máli á hvora tónleikana er farið. Stemningin verður frábær á báðum tónleikunum. Miðar á fyrri tónleikana fást afhentir í Íþróttamiðstöðinni, Eldheimum og Safnahúsi. Er um að gera að tryggja sér miða sem fyrst.

 

Vestmannaeyjabær býður á tónleikana -  enginn aðgangseyrir