Umsóknarfrestur er til 21. nóvember nk. Nálgast má umsóknareyðublöð í þjónustuveri í Ráðhúsinu eða á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar (STAVEY) og Launanefndar sveitarfélaga. Nánari upplýsingar veitir Lára Dögg Konráðsdóttir á lara@vestmannaeyjar.is eða í síma 488-2000.
Félagsleg liðveisla – hlutastörf – sveigjanlegur vinnutími
Óskum eftir starfsfólki af báðum kynjum í félagslega liðveislu fyrir börn og fullorðna. Félagsleg liðveisla felur í sér persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, s.s. stuðning til að stunda íþróttir/líkamsrækt, fara á menningartengda viðburði og annað félagsstarf. Um er að ræða hlutastarf, minnst 12-16 tímar í mánuði sem getur hentað vel sem aukastarf með námi eða öðru starfi. Einnig hægt að setja saman í stærra starfshlutfall. Starfsmenn vantar strax. Hvetjum við karlmenn sérstaklega til að sækja um.
Nálgast má umsóknareyðublöð í þjónustuveri í Ráðhúsinu eða á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar (STAVEY) og Launanefndar sveitarfélaga. Nánari upplýsingar veitir Lára Dögg Konráðsdóttir á lara@vestmannaeyjar.is eða í síma 488-2000.