Fara í efni
18.02.2016 Fréttir

Stóra upplestrarkeppnin 2016

Deildu
Nemendur í  7. bekkjum GRV  hafa, í vetur, æft upplestur undir stjórn kennara sinna, þeirra Jóhönnu Njálsdóttur, Önnu Ýrar  Sveinsdóttur  og Svanhvítar  Friðþjófsdóttur.  Tólf  nemendur, sem   lásu  upp  á lokahátíð GRV  fimmtudaginn 18. febrúar,  stóðu sig vel og voru kennurum sínum og foreldrum  til mikils sóma.   Þrír nemendur og einn varamaður voru valdir úr hópnum  til að  keppa  á upplestrarhátíð   við nemendur úr skólum á Suðurlandi.  Þeir,  sem völdust til að keppa fyrir hönd GRV   á lokahátíðinni á Suðurlandi, eru  Aðalheiður S. Magnúsdóttir, Arnar Gauti Egilsson,  Hólmfríður Arna Steinsdóttir og  varamaður er Díana Svava Birkisdóttir.  Í hléi  bauð Ingimar í Vöruvali  upp á hlaðborð af ferskum ávöxtum    og eru honum færðar sérstakar þakkir fyrir, en hann hefur stutt upplestrarkeppnina  með þessu móti   mörg undanfarin ár.   Nemendum 7. bekkja,  bæði  lesurum og  þeim sem á hlýddu,  eru færðar þakkir fyrir gott hljóð og prúðmannlega framkomu.   Dómarar fá þakkir fyrir þeirra mikilvæga hlutverk  og Tónlistarskólinn fyrir greiðan aðgang að sal  skólans.  Jafnframt  eru foreldrum, kennurum og stjórnendum GRV  sendar  hamingjuóskir með þennan frábæra hóp sem 7. bekkurinn er. 

F.h. fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyja

Erna Jóhannesdóttir

fræðslufulltrúi