Fara í efni
28.02.2014 Fréttir

Stóra upplestrarkeppnin 2014

Nemendur í  7. bekkjum GRV hafa í allan vetur æft upplestur með kennurum sínum og að undanförnu hafa 12 nemendur, sem komust í úrslit í bekkjum sínum, æft undir stjórn Fríðu Sigurðardóttur.
Deildu
 Í morgun, föstudaginn 28. febrúar  fóru fram undanúrslit þar sem þrír nemendur og einn varamaður  voru valin  til að fara  og taka þátt í lokahátíð  Stóru upplestrarkeppninnar á  Kirkjubæjarklaustri  í næsta mánuði. Nemendur lásu kafla úr sögunni Benjamín dúfa eftir Friðrik Erlingsson.  Því næst lásu allir ljóð eftir Þóru Jónsdóttur og loks lásu nemendur ljóð að eigin vali.  Allir  þátttakendurnir stóðu sig með mikilli prýði og voru dómarar ekki  öfundsverðir af  hlutverki  sínu.    Nemendurnir sem völdust til að keppa fyrir hönd GRV  eru   Brigitta Kristín Bjarnadóttir, Urður Eir Egilsdóttir,  Úlfur Alexander Hansen og  varamaður Hulda Helgadóttir.  Í hléi bauð Vöruval  upp á ferska ávexti og eru Ingimari  í Vöruvali færðar miklar þakkir fyrir, en hann hefur stutt upplestrarkeppnina  með þessu móti   mörg undanfarin ár.   Nemendum 7. bekkja,  bæði  lesurum og  þeim sem á hlýddu,  eru færðar þakkir fyrir gott hljóð og prúðmannlega framkomu.  Dómarar fá þakkir fyrir þeirra mikilvæga hlutverk .  Jafnframt  eru foreldrum, kennurum og stjórnendum GRV   sendar  hamingjuóskir með þennan frábæra hóp sem  7. bekkurinn er. 

F.h. fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyja

Erna Jóhannesdóttir

fræðslufulltrúi