Fara í efni
01.09.2022 Fréttir

Starfsmaður óskast í eftirskóla úrræði í Grunnskóla Vestmannaeyja/Frístund

Frístundaverið óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinenda í eftirskólaúrræði fyrir nemendur með fatlanir/raskanir. Einnig er óskað eftir starfsmanni í aðstoð í eldhúsi á Frístund í Hamarsskóla.

Deildu

Frístundaleiðbeinandi/stuðningsfulltrúi – eftirskóla úrræði

Óskað er eftir því að ráða frístundaleiðbeinanda í 25 - 30% stöðu. Vinnutími er frá því að skóla lýkur til kl. 15:30. Starfsstöð er Barnaskóli.

Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúinn í samstarf með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg.

Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Laun miðast við tímavinnu og eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey.

Helstu verkefni

  • Vinna með börnum
  • Almenn umönun barna
  • Félagslegur stuðningur við nemendur

Aðstoð í eldhúsi

Frístundaverið í Hamarsskóla óskar eftir að ráða aðstoð í eldhúsi í 37,5% stöðu. Vinnutími er að jafnaði eftir hádegi á virkum dögum frá 13:00-16:00. Einnig eru 30 dagar yfir skólaárið þar sem er opið frá 07:45-16:30. Starfsmaður vinnur á sumrin í sumarfjörinu.

Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúin í samstarf með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg

Viðkomandi starfar í eldhúsi við matarskömmtun og þrif og fær að jafnaði nákvæma leiðsögn frá næsta yfirmanni.

Helstu verkefni

  • Að undirbúa síðdegishressingar alla virka daga skólaársins
  • Að undirbúa morgun hressingar og matarskömmtun í hádegi þegar við á þessa 30 daga sem opið er allan daginn á frístund
  • Þrif á eldhúsi og í matsal
  • Vinna með börnum

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsækjandi þarf að hafa náð 18. ára aldri.

Nánari starfslýsingu og upplýsingar má nálgast hjá forstöðumanni Antoni Erni Björnssyni í síma 4812964 / 8688769 eða í tölvupósti: anton@vestmannaeyjar.is

Umsókn sendist á anton@vestmannaeyjar.is merkt viðkomandi starfi sem sótt er um. Ekki er sótt um á sérstökum eyðublöðum en umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og rökstuðningur af hverju viðkomandi sækist eftir starfinu.

Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020

Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.

Umsóknarfrestur er til og með 14. september nk.