Menntunar og hæfniskröfur:
Uppeldismenntun eða reynsla af störfum á vettvangi frítíma æskileg.
Búi að reynslu eða þekkingu sem nýtist í starfi s.s. tölvu- og netnotkun, myndbandagerð, ljósmyndun
Frumkvæði og sjálfstæði.
Góð færni í samskiptum.
Stjórnunar og skipulagshæfileikar.
Áhugi á starfi með unglingum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Ráðhúsins og ber að skila umsóknum þangað. Endurnýja þarf gamlar umsóknir.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst.
Nánari upplýsingar veitir Sigþóra Guðmundsdóttir á staðnum eða í síma 481-1980 milli kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00, einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið sigthora@vestmannaeyjar.is