Vestmannaeyjabær auglýsir hér með eftir starfsmanni í 100% starf í Þjónustumiðstöð Vestmannaeyja.
Um er að ræða almennt starf sem tengist fjölmörgum verkefnum í ýmsum málaflokkum svo sem umferða- og samgöngumálum, umhverfismálum, holræsa- og fráveitumálum svo eitthvað sé nefnt.
Umsækjandi skal vera með vinuvélaréttindi fyrir smærri tæki svo sem dráttarvél. Viðkomandi getur hafið störf strax eða eftir samkomulagi.
Um reyklausan vinnustað er að ræða.
Laun samkvæmt kjarasamningi Stavey og Drífanda, Verkamaður II.
Nánari upplýsingar gefur Guðmundur Þ. B. Ólafsson, rekstrarstjóri Þjónustumiðstöðvar, Heiðarvegi 14, sími 488-2500.
Umsóknarfrestur er til 26. janúar 2016.
Umsóknum skal skilað í afgreiðslu í Ráðhúsinu Kirkjuvegi 50, fyrir þann tíma.