Fara í efni
10.02.2016 Fréttir

Starfsmaður í Ráðhús Vestmannaeyjabæjar

Vestmannaeyjabær auglýsir eftir starfsmanni í 80% stöðu í Ráðhúsinu.

Deildu
Starfið skiptist í 50% stöðu á launadeild Vestmannaeyjabæjar og 30% stöðu í þjónustuveri Ráðhússins.

Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af almennum skrifstofustörfum. Viðkomandi þarf að hafa  góða og lipra þjónustulund sem og færni í mannlegum samskiptum.

Þekking á Navision bókhalds- og launakerfinu og Vinnustund tímaskráningakerfinu er æskileg. 

 

Laun skv. kjarasamningi STAVEY og launanefndar sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar gefur Rut Haraldsdóttir framkvæmdastjóri Stjórnsýslu- og fjármálasviðs í síma 488-2000 eða á netfangið rut@vestmannaeyjar.is.

Umsóknum skal skilað fyrir 22. febrúar n.k. í Ráðhús Vestmannaeyja, Kirkjuvegi 50, 900 Vestmannaeyjum merkt STARFSMAÐUR RÁÐHÚSS.  Einnig er hægt að skila umsóknum á netfangið rut@vestmannaeyjar.is