- Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum.
- Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2023.
Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar 1. maí nk. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða í Ráðhúsið, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns.
Nánari upplýsingar veitir Matthildur Halldórsdóttir með tölvupósti ( matthildur@vestmannaeyjar.is ) eða í síma 488 2000.
