Fara í efni
07.04.2020 Fréttir

Starfslaun bæjarlistamanns 2020

Vestmannaeyjabær auglýsir eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2020.

Deildu

- Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum. 

- Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu. 

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2020. Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar 1. júní. 

Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða á bæjarskrifstofur Vestmannaeyja við Bárustíg, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns. 

Nánari upplýsingar veitir Matthildur Halldórsdóttir með tölvupósti (matthildur@vestmannaeyjar.is) eða í síma 488-2000.