Starfslaun bæjarlistamanns 2019
Vestmannaeyjabær auglýsir eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2019.?? ??
- Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum.
- Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.
Umsóknarfrestur er til og með 18.apríl 2019. Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar 1. maí. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða á bæjarskrifstofur Vestmannaeyja við Bárustíg, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns.
Nánari upplýsingar veitir Matthildur Halldórsdóttir (matthildur@vestmannaeyjar.is) eða í síma 488-2000.