- Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum.
- Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.
Umsóknarfrestur er til og með 6.apríl 2018. Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar á sumardaginn fyrsta. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða á bæjarskrifstofur Vestmannaeyja við Bárustíg, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir (margret@vestmannaeyjar.is) eða í síma 4882000.