Fara í efni
15.03.2017 Fréttir

Starfslaun bæjarlistamanns 2017

Vestmannaeyjabær auglýsir eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamanns Vestmannaeyja fyrir árið 2017.?? ??
Deildu
 
 
 
- Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum.
- Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.
 
Umsóknarfrestur er til og með 7.apríl 2017. Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar á sumardaginn fyrsta þann 20.apríl nk. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða á bæjarskrifstofur Vestmannaeyja við Bárustíg, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns.
Nánari upplýsingar veita Margrét Ingólfsdóttir (margret@vestmannaeyjar.is) eða í síma 4882000.
Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar