Fara í efni
19.03.2013 Fréttir

Starfslaun bæjarlistamanns 2013

 Fræðslu- og menningarráð Vestmannaeyjabæjar auglýsir eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2013.  Samkvæmt úthlutunarreglum frá 24. Nóvember 2011.  

Deildu
Í gildandi reglum um úthlutun starfslaunanna segir m.a.:
 
  
 
- Tillögur og umsóknir um starfslaun ber að skila til fræðslu- og menningarráðs Vestmannaeyjabæjar.
 
- Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagsamtökum.
 
- Að jafnaði koma þeir einir til greina sem bæjarlistamenn sem búsettir eru í Vestmannaeyjum.
 
- Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.
 
- Umsóknarfrestur er til og með 17.apríl 2013. Fræðslu- og menningarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar á sumardaginn fyrsta.
 
 
 
Umsóknum og tillögum skal skila til fræðslu- og menningarráðs Vestmannaeyjabæjar ekki seinna en 17. apríl nk. og skulu þær vera í samræmi við framangreindar reglur.
 
Reglurnar í heild er hægt að fá afhentar á bæjarskrifstofunni í Ráðhúsinu eða lesa á www.vestmannaeyjar.is
 
 
Nánari upplýsingar veita Kristín Jóhannsdóttir menningar- og markaðsfulltrúi og Rut Haraldsdóttir framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs í síma 4882000.
 
  
Fræðslu- og menningarráð Vestmannaeyjabæjar