Fara í efni
22.03.2012 Fréttir

Starfslaun bæjarlistamanns 2012

Fræðslu- og menningarráð Vestmannaeyjabæjar auglýsir eftir tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2012.

Deildu
 Samkvæmt breyttum úthlutunarreglum frá  24. nóvember 2011 er óskað eftir tillögum í stað umsókna.

Í gildandi reglum um úthlutun starfslaunanna segir m.a.:

 

-          Sækja skal um starfslaun til fræðslu- og menningarráðs Vestmannaeyjabæjar.

-          Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagsamtökum.   

-          Að jafnaði koma þeir einir til greina sem bæjarlistamenn sem búsettir eru í Vestmannaeyjum.

-          Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.

-          Umsóknarfrestur er til og með 13.apríl 2012.  Fræðslu- og menningarráð velur úr framkomnum tillögum og úthlutar á sumardaginn fyrsta. 

 

 

Umsóknum skal skila til fræðslu- og menningarráðs Vestmannaeyjabæjar ekki seinna en  13. apríl nk. og skulu þær vera í samræmi við framangreindar reglur.

Reglurnar í heild er hægt að fá afhentar á bæjarskrifstofunni í Ráðhúsinu eða lesa hér

 

Nánari upplýsingar veita Kristín Jóhannsdóttir menningar- og markaðsfulltrúi og Rut Haraldsdóttir framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs í síma 4882000.

 

Fræðslu- og menningarráð Vestmannaeyjabæjar