Fara í efni
08.07.2008 Fréttir

Starfshópur um goslokahátíð þakkar gestum hátíðarinnar fyrir ánægulegar samverustundir um helgina.

Við erum afar ánægð með hvað andinn á hátíðinni var góður. Þetta þökkum við bæjarbúum og gestum, sem sóttu af krafti alla dagskrárliði hátíðarinnar með gleðina og góða skapið í fyrirrúmi. Þrátt fyrir mikið fjölmenni í Skvísusundi fór allt vel fram.
Deildu

 Við viljum einnig þakka listamönnum og starfsmönnum hátíðarinnar fyrir einstaklega gott og skemmtilegt samstarf.

Helga Björk Ólafsdóttir
Páley Borgþórsdóttir
Páll Schving
Kristín Jóhannsdóttir