Fara í efni
24.05.2023 Fréttir

Starfsmaður í stuðningsþjónustuna

Vestmannaeyjabær óskar eftir að ráða starfsmann í gefandi starf til að annast félagsleg innlit, innkaup og létta aðstoð við þjónustuþega.

Deildu

Starfsmaður í stuðningsþjónustu

Um er að ræða 50% dagvinnustarf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. júní eða sem fyrst eftir samkomulagi.

Helstu verkefni:

  • Létt aðstoð við þjónustuþega
  • Félagslegt innlit
  • Innkaup

Menntunar- og/eða hæfniskröfur:

  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

Nánari starfslýsingu og upplýsingar má nálgast hjá Kolbrún Anna Rúnarsdóttir í síma 488 2607 eða í tölvupósti: kolla@vestmannaeyjar.is

Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey/Drífanda.

Umsóknir skulu almennt berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða með tölvupósti á forstöðumann.

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.

Umsóknarfrestur er til og með 30. maí nk.