Um er að ræða tvær stöður frístundaleiðbeinanda
Starfsmenn þurfa að geta hafið störf 15.ágúst . Frístundarverið er staðsett í Hamarsskóla og er starfrækt eftir hádegi alla virka skóladaga frá því að skóla lýkur og til 16:30. Einnig er opið á Frístund flesta daga þegar skólinn er lokaður frá 07:45-16:30. Starfsmenn koma til með að vinna í sumarfjörinu á sumrin.
Frístundaleiðbeinandi
Frístundaverið í Hamarsskóla óskar eftir því að ráða frístundaleiðbeinanda í 37,5 – 50% stöðu. Vinnutími er að jafnaði eftir hádegi á virkum dögum. Frá 13:00-16:00/16:30. Á sumrin vinnur starfsmaður í sumarfjörinu frá 09:00-16:00 á daginn og hækkar starfshlutfall eftir því.
Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúin í samstarf með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg.
Helstu verkefni
- Vinna með börnum
- Almenn umönnun barna
- Fylgd á íþróttaæfingar
- Hjálpar til að móta og framvæma dagskrá
- Aðstoð við síðdegishressing
Nánari upplýsingar um starfið má nálgast hjá Önnu Rós Hallgrímsdóttur skólastjóra GRV á netfangið: annaros@grv.is eða Sigþóri Erni Valgeirssyni núverandi forstöðumanni frístundar á netfangið: sigthor@vestmannaeyjar.is.
Umsókn sendist á annaros@grv.is eða með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Umsækjandi þarf að hafa náð 18. ára aldri og að hafa hreint sakavottorð. Umsókn skal fylgja ferilskrá og rökstuðningur af hverju viðkomandi sækist eftir starfinu.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey/Drífanda.
Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.
Umsóknarfrestur er til 25. ágúst 2023.
