Fara í efni
30.07.2013 Fréttir

Starf í Kertaverksmiðjunni - stuðningsfulltrúi

Heimaey kertaverksmiðja - verndaður vinnustaður leitar að áhugasömum starfsmanni í starf stuðningsfulltrúa. Í boði er 50% framtíðarstarf, vinnutíminn er frá kl. 13.00 -17.00 og æskilegt að geta hafið starf sem fyrst.
Deildu
Starfið miðar að því að auka færni einstaklinga með fötlun, bæði verklega og félagslega. Mikilvægt er því að umsækjandi hafi til að bera ákveðna færni í mannlegum samskiptum og áhuga á að vinna með fólki. Einhver reynsla í vinnu með fötluðum er æskileg en ekki skilyrði. Stuðningsfulltrúi mun vinna undir handleiðslu og í nánu samstarfi við yfirmann á vinnustaðnum. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sveinn í netfangið heimaey@eyjar.is Laun eru samkvæmt kjarasamningi STAVEY. Umsóknareyðublöð munu liggja frammi í afgreiðslu þjónustuvers Ráðhúss Vestmannaeyja og óskast þeim skilað á sama stað fyrir 16. ágúst nk.