Markmið:
Þroskaþjálfi vinnur samkvæmt reglugerð um þroskaþjálfa, siðareglum þroskaþjálfa, lögum og reglugerðum um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra og öðrum lögum og reglugerðum sem við eiga. Einnig starfar hann eftir aðalnámskrá leikskóla og stefnu Víkurinnar. Þroskaþjálfi sér um þjálfun barns og vinnur undir leiðsögn deildarstjóra/ leikskólastjóra/ sérkennsluráðgjafa/ ráðgjafarþroskaþjálfa.
Nánari upplýsingar um helstu verkefni og ábyrgð í starfi veitir aðsoðarleikskólastjóri Víkurinnar.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 14. ágúst næstkomandi.
Umsóknarfrestur er til og með 2. júlí 2019.
Umsóknir berist til Guðrúnar S. Þorsteinsdóttur aðstoðarleikskólastjóra í Víkinni-5 ára deild. Þeim þarf að fylgja hreint sakavottorð og afrit af prófskírteini/leyfisbréfi ef það á við.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún S. Þorsteinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 488-2231, eða í tölvupósti; gudrun@grv.is