Viðkomandi þarf að hafa leyfisbréf sem náms- og starfsráðgjafi, vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, hæfni og lipurð í samskiptum er mikilvægur þáttur. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn í öflugt samstarf, með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Í Grunnskóla Vestmannaeyja eru um 515 nemendur.
Námsráðgjafi er hluti af stoðkerfi skólans. Hlutverk námsráðgjafa er að vera talsmenn nemenda í skólanum, standa vörð um velferð nemenda og leita lausna í málum þeirra.
Helstu verkefni náms- og starfsráðgjafa eru:
· Ráðgjöf í námi og starfi
· Ráðgjöf við náms- og starfsval (náms- og starfsfræðsla).
· Persónuleg ráðgjöf og stuðningur
· Námstækni
Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi KÍ.
Umsóknarfrestur er til 7. febrúar. nk. Ekki er sótt um á sérstökum eyðublöðum en umsókn skal fylgja ítarleg ferilská, leyfisbréf til að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi auk annarra gagna er málið varðar. Umsóknum ber að skila á rafrænu formi á netfangið annaros@grv.is merkt: Náms- og starfsráðgjafi við GRV.
Gott væri ef starfsmaður gæti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri S: 488-2202, annaros@grv.is
