Fara í efni
28.08.2018 Fréttir

Staða náms- og starfsráðgjafa við GRV

Staða náms- og starfsráðgjafa við Grunnskóla Vestmannaeyja er laus til umsóknar.

Deildu

Viðkomandi þarf að hafa leyfisbréf sem náms- og starfsráðgjafi, vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, hæfni og lipurð í samskiptum er mikilvægur þáttur. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn í öflugt samstarf, með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi.

Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi KÍ. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Í Grunnskóla Vestmannaeyja eru um 520 nemendur.

Stöðugildið er 80% og eru laun greidd skv. kjarasamningi KÍ og LN. Staðan er til afleysingar skólaárið 2018-2019.

Umsóknarfrestur er til 10. sept. nk. Ekki er sótt um á sérstökum eyðublöðum en umsókn skal fylgja ítarleg ferilská, leyfisbréf til að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi auk annarra gagna er málið varðar. Umsóknum ber að skila á rafrænu formi á netfangið annaros@grv.is merkt:  Náms- og starfsráðgjafi við GRV.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri S: 488-2202, annaros@grv.is