Fara í efni
08.12.2020 Fréttir

Staða bæjarsjóðs áfram sterk

Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar var samþykkt í bæjarstjórn þann 3. desember sl. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, gerði grein fyrir áætlunni og þeim breytingum sem orðið hafa á fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2021 frá fyrri umræðu.

Deildu

Þrátt fyrir efnahagsleg og samfélagsleg áföll sem dunið hafa yfir á þessu ári vegna Covid-19, stendur bæjarsjóður Vestmannaeyja traustum fótum, hvort heldur litið er til reksturs, eigna eða skulda. Við rekstur sveitarfélagsins á næsta ári verður áhersla lögð á ábyrg fjármál og hagkvæman rekstur, en ekki síður að veita góða þjónustu. Jafnframt er þess gætt að stilla álagningu skatta og opinberra gjalda í hóf.

Sveitarfélögin á landinu hafa verið að glíma við gríðarlega erfiðar áskoranir í rekstri og fjármögnun lögbundinna verkefna, með tilheyrandi lausafjárvanda, rekstrartapi og skuldasöfnun. Eins og önnur sveitarfélög þarf Vestmannaeyjabær að takast á við slíkar áskoranir. Framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hafa t.a.m. lækkað töluvert milli ára og loðnubrestur haft áhrif á útsvarstekjur. Þá hefur þrýstingur á aukna fjárfestingu bæjarins aukist, til þess að viðhalda og efla atvinnu. Jafnframt hafa kjarasamningar opinberra starfsmanna leitt til aukins rekstrarkostnaðar. Þrátt fyrir þetta er gert ráð fyrir að staða bæjarsjóðs Vestmannaeyja verði áfram traust. Áhrif af Covid-19 gera það hins vegar að verkum að rekstrarafkoma bæjarsjóðs verður lægri en undanfarin ár. Mikilvægt er að ekki stendur til að skerða þjónustu við bæjarbúa, né grípa til uppsagna starfsfólks. Þá er gert ráð fyrir myndarlegri fjárfestingu í framkvæmdir á næsta ári og hluti af þeim framkvæmdum stýrð með hliðsjón af atvinnuástandi og horfum á næsta ári.

Gert er ráð fyrir að rekstrarafgangur A-hluta bæjarsjóðs verði rúmar 30 m.kr. og hjá samstæðunni tæpar 104 m.kr. Veltufé frá rekstri er áætlað tæpar 488 m.kr. hjá A-hluta og tæpar 680 m.kr. í samstæðureikningi.

Gert er ráð fyrir tæpum 1.015 m.kr. (rúmum milljarði) í eignfærðar framkvæmdir á næsta ári. Er þar um að ræða fjölda verkefna sem skapa vinnu í Vestmannaeyjum, en jafnframt verðmæti fyrir Vestmannaeyinga, svo ljósleiðaravæðingu, aðstöðu fyrir nýsköpun- og frumkvöðlastarf og aðra mikilvæga starfsemi. Þá er gert ráð fyrir tæpum 279 m.kr. til ýmissa gjaldfærðra verkefna, svokallaðra sérsamþykkta, sem ekki tilheyra lögbundnum verkefnum og reglubundnum grunnrekstri sveitarfélagsins. Um er að ræða ýmis átaksverkefni, heilsueflingu, bætt umhverfi og aðstöðu fyrir Vestmannaeyinga, spjaldtölvuvæðingu í grunnskólunum, áframhaldandi átak á ferðamá og ýmis önnur framfaraverkefni.

Staða bæjarsjóðs verður því áfram sterk. Gert er ráð fyrir jákvæðri rekstrarafkomu, áframhaldandi góðri þjónustu við bæjarbúa, hagkvæmni í rekstri, hóflegum sköttum og opinberum gjöldum, öflugri fjárfestingu og atvinnusköpun.

Einnig var samþykkt á fundinum þriggja ára áætlun fyrir árin 2022-2024.

Með framsögu bæjarstjóra um fjárhagsætlun 2021 og þriggja ára áætluninni voru glærur sem fylgja þessari frétt.

Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2021, seinni umræða - glærur

Þriggja ára fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2022-2024 - glæra