Fara í efni
03.06.2013 Fréttir

Spennandi störf

Sumarstörf í heimaþjónustu frá 18.júní

Starfsmenn vantar í heimaþjónustu sem felur í sér:

- Aðstoð við almennt heimilishald

- Innkaup og útréttingar

- Félagslegan stuðning

Umsækjandi þarf að hafa til að bera heiðarleika, snyrtimennsku, dugnað og góða samskiptahæfni.

Deildu
- Störfin geta verið hlutastörf eða fullt starf. Unnið er virka daga.
- Einnig eru hlutastörf til framtíðar í boði.

Félagsleg liðveisla – hlutastörf – sveigjanlegur vinnutími

Óskum eftir starfsfólki í félagslega liðveislu fyrir börn og fullorðna. Félagsleg liðveisla felur í sér persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun.  S.s. stuðning til að stunda íþróttir, fara á menningartengda viðburði  og annað félagsstarf.  Starfstími er aðallega síðari hluta dags, á kvöldin og/eða um helgar. Um er að ræða hlutastarf 12-16 tímar í mánuði sem  getur hentað vel sem aukastarf með námi eða öðru starfi.

Umsóknarfrestur er til 11.júní og má nálgast umsóknareyðublöð í þjónustuver Ráðhúss eða á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar (STAVEY) og Launanefndar sveitarfélaga. Nánari upplýsingar veitir Hrefna Jónsdóttir á netfanginu hrefna@vestmannaeyjar.is eða síma 488-2000 og Sigurleif Guðfinnsdóttir á netfanginu heimilishjalp@vestmannaeyjar.is eða í síma 488-2607.