Færri hafa komist að en vilja síðan völlurinn var tilbúinn við Barnaskólann og fyrirspurnir frá þeim eldri um notkun milli 22.00 -23.00 á kvöldin.
Eyjólfur Sverrisson, Lúðvík Bergvinsson forseti bæjarstjórnar, Einar Friðþjófsson stjórnarmaður KSÍ, formaður nemendaráðs Barnaskólans Magnús Bragason fluttu stutt ávörp, þökkuðu styrktarsaðilum og öðrum sem komið hafa að málinu þegar völlurinn var formlega vígður eftir hádegið í dag 21. september. Fjölmennt var við athöfnina m.a. starfsmenn Vestmannaeyjabæjar, og aðrir fulltrúar styrktaraðila sem voru frá Olís, Eimskip, Vis, og KB. MTV bauð í kaffi á eftir og heildverslun Karls Kristmannssonar bauð öllum nemendum upp á Kjörís.
Sparkvöllurinn var settur upp í samvinnu Vestmannaeyjabæjar og KSÍ og styrktaraðila. Eyjólfur Sverrisson, fyrrum landsliðsfyrirliði og starfsmaður KSÍ, óskaði Eyjamönnum til hamingju með nýja völlinn,.Hann afhenti einnig ÍBV- íþróttafélagi fótbolta frá styrktaraðilum KSÍ og Halldóru Magnúsdóttir, skólastjóra, tvo bolta til að nota á vellinum. Eyjólfur bað krakkana og aðra sem koma til með að nota vellina jafnframt að fara vel með hann og umgangast hann með virðingu.
Fræðslu- og menningarsvið Vestmannaeyjabæjar.