Mjög víða í bænum eru stærðarinnar snjóhengjur og grýlukerti farin að hanga fram af þakköntum með tilheyrandi slysahættu fyrir gangandi vegfarendur.
Við hvetjum húseigendur, fyrirtæki og stofnanir til að huga að þessu og fjarlægja sem allra fyrst eða gera aðrar ráðstafanir svo ekki hljótist slys af þegar þetta fellur niður.

