Fara í efni
26.11.2026 Fréttir

Smíði útisviðs á Vigtartorgi hafin

Smíði nýs útisviðs á Vigtartorgi er hafin. Með tilkomu sviðsins er stigið lokaskrefið í uppbyggingu og frágangi torgsins sem hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum.

Deildu

Sviðið verður 82,8 fermetrar að stærð og er ætlað að skapa góða aðstöðu fyrir tónleika, menningarviðburði, hátíðarhöld og aðrar uppákomur. Með tilkomu þess skapast auknir möguleikar á fjölbreyttu viðburðahaldi í hjarta bæjarins, bæði fyrir heimamenn og gesti 

Á undanförnum árum hefur Vestmannaeyjabær unnið markvisst að uppbyggingu Vigtartorgs með það að markmiði að skapa lifandi og aðlaðandi samkomusvæði sem tengir saman miðbæinn og hafnarsvæðið. Meðal framkvæmda má nefna endurnýjun og fegrun torgsins, bætta aðstöðu til útivistar og samveru ásamt byggingu almenningssalerna.

Útisviðið hefur frá upphafi verið hluti af heildarhönnun Vigtartorgs og er eins konar lokahnykkur í þeirri miklu uppbyggingu sem þar hefur átt sér stað.

Með framkvæmdinni verður umgjörð torgsins sem samkomu- og viðburðasvæðis enn sterkari og skapast ný tækifæri til að efla mannlíf og menningarstarf í Vestmannaeyjum til framtíðar.