Fara í efni
25.05.2009 Fréttir

Skólaslit, öðruvísi dagar, árshátíð og fleira skemmtilegt í Grunnskóla Vestmannaeyja

Þessa vikuna standa yfir Náttúruvísindadagar og Öðruvísi dagar hjá nemendum grunnskólans. Þeir eru því í hópum út um alla eyju við nám og leik.

Deildu

Öðruvísi dögum lýkur með Árshátíð unglingastigsins í Höllinni n.k. föstudagskvöld, 29. maí.

Þriðjudaginn 2. júní er svo grill-og útivistardagur skólans. Þann dag stendur líka yfir góðgerðahlaup miðstigsins sem verður kynnt nánar síðar.

Skólaslitin verða sem hér segir:

Í Höllinni 3. júní
10. bekkur kl. 17:30

Í Hamarsskóla 4. júní
1. bekkur kl. 9:00
2. bekkur kl. 9:30
3. bekkur kl.10:00
4. bekkur kl. 10:30
5. bekkur kl. 11:00

Í Barnaskóla 4. júní
6. bekkur kl. 11:30
7. bekkur kl. 12:00
8. bekkur kl. 13:00
9. bekkur kl. 12:30

Foreldrar og aðrir aðstandendur eru hjartanlega velkomnir á skólaslit og við viljum sérstaklega hvetja foreldra og forráðamenn 10. bekkjar til að koma og halda skólalokin hátíðleg með okkur.
Hlökkum til að sjá ykkur
Skólastjórnendur