Fara í efni
07.09.2022 Fréttir

Skólaliði óskast

Skólaliðar óskast í Grunnskóla Vestmannaeyja

Deildu

Óskað er eftir skólaliða í 90-100 % starfshlutfalli

Starfið er þvíþætt:

Vinnutími er alla daga frá kl. 08:00 -16:00. Frá 08:00-13:00/14:00 yrði viðkomandi í öðru hvoru skólahúsnæðinu (Barnaskóla eða Hamarsskóla) eftir þörfum og sinnir þar almennum störfum skólaliða.

Frá kl. 13:00/14:00-16:00 sinnir starfsfmaður ræstingu í Barnaskóla auk gæslu á göngum í lok skóladags.

Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Starf skólaliða felst m.a í aðstoð við nemendur í leik- og grunnskóla, gæslu og þrifum á skólahúsnæði.

Áhugi og reynsla á að vinna með börnum og reynsla við ræstingarstörf er kostur. Hreint sakavottorð er skilyrði.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Vestmannaeyja (Stavey) eða Drífanda stéttarfélags.

Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020

Umsóknir skulu berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar: https://www.vestmannaeyjar.is/thatttaka/umsoknir/ Eða með tölvupósti á annaros@grv.is.

Umsóknarfrestur er til 21. september. Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri í síma 488-2202, annaros@grv.is Einnig má hafa sambandi við Guðrúnu Ágústu Möller húsvörð í Hamarsskóla s:8614363 og/eða Kristján Egilsson húsvörð í Barnaskóla s: 8614362