Fara í efni
08.12.2025 Fréttir

Hæfileikaríkir krakkar í Skjálfta á Suðurlandi

Hugrakkt og hæfileikaríkt ungt fólk í Skjálftanum 2025 á Suðurlandi

Deildu

Skjálftinn, hæfileikakeppni sunnlenskra ungmenna fór fram í fimmta sinn í um helgina við hátíðlega athöfn. Á hátíðinni sýndu ungmenni úr 8.-10 bekk frá Grunnskólum á Suðurlandi fjölbreytt og áhrifarík sviðsverk.

Tólf nemendur úr 8.-10. bekk í Grunnskóla Vestmannaeyja tóku þátt í keppninni eftir að hafa skapað verkið sitt undir leiðsögn Bryndísar Guðjónsdóttur. 

Það var svo sannarlega hæfileikakonfettí sem sprakk yfir allt Suðurland. Þvílíkir töfrar sem ungmenninn sýndu á sviðinu.

Hátíðin einkenndist af samkennd, hugrekki, vináttu og samstöðu. Verkin voru hver öðru áhrifaríkari og sendu þau öll öflugan boðskap út í samfélagið.

Stærstu ádeilumál þjóðarinnar voru tekin fyrir með sterkum og öflugum röddum unga fólksins. Verkin áttu það sameiginlegt að endurspegla tilfinningalitróf manneskjunnar á bæði spennuþrungin og kómískan hátt með samkenndina að vopni. Það er ljóst að framtíðin er í góðum höndum ungs fólks á Íslandi!

 

Hægt er að sjá öll atriði SKJÁLFTANS 2025 ár RÚV: SKJÁLFTINN Á RÚV


Vallaskóli bar sigur úr býtum við gífurleg fagnaðarlæti með verkið sitt LITRÍKIR SKUGGAR.

„Verkið speglar bakslagið sem dynur á hinsegin samfélaginu og eflir þá vonarbarátta um viðsnúninginn að ljósinu sem beinir okkur í rétta átt.“

Annað sætið hlaut Grunnskólinn í Hveragerði fyrir verkið ÞORI, GET OG VIL.

„Verkið fjallar um kvenréttindabaráttuna og það ferðalag sem konur hafa farið í til að fá sömu réttindi og karlmenn.“

Í þriðja sæti var Reykholtsskóli með verkið STERÍÓTÝPUR.

„Verkið fjallar um það að vilja falla inn í hópinn en þurfa þess ekki. Fögnum fjölbreytileikanum, einstaklingnum sem einstökum og gleðinni við það að vera maður sjálfur.“

Allir þátttakendur lögðu hug og hjarta í undirbúning og var afraksturinn stórglæsilegur.

 

Skjálftinnn er samfélagslegt verkefni með sjálfbærni að leiðarljósi, búinn til með það að markmiði að efla samkennd og hafa jákvæð áhrif á samfélag og menntun ungmenna.
 

Vefsíða Skjálfta