Skipulagsdrög eru nú kynnt fyrir hagsmunaaðilum, umsagnaraðilum og almenningi. Helsta markmið með gerð nýs deiliskipulags er að fjölga lóðum fyrir blandaða atvinnustarfsemi í Vestmannaeyjum, með það að leiðarljósi að fjölbreytt starfsemi geti verið á svæðinu. Lögð verður rík áhersla á góða nýtingu svæðisins þar sem land í Vestmannaeyjum er takmörkuð auðlind.
Skipulagsgögn liggja frammi hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði að Skildingavegi 5 og á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar, www.vestmannaeyjar.is
Athugasemdafrestur er til 21. feb. n.k. og er hægt að skila á netfang skipulagsfulltúra bygg@vestmannaeyjar.is eða bréflega til Umhverfis-og framkvæmdasviðs Skildingavegi 5.
Skipulagsfulltrúi