26.07.2018
Skemmtilegt hlutastarf
Okkur á Hraunbúðum vantar starfsmann í dagdvölina á Hraunbúðum í hlutastarf.
Vinnutími er kl. 12-16, 1-2 daga í viku, með möguleika á meiri vinnu í afleysingum.
Skemmtilegt og gefandi starf með skemmtilegu fólki. Æskilegt að viðkomandi sé með kunnáttu í hannyrðum, hafi
áhuga og færni í að vinna með eldri borgurum og geti sinnt léttri aðhlynningu. Starfið er laust nú þegar og er umsóknarfrestur til 8.ágúst n.k.
Í dagdvölina á Hraunbúðum koma eldri borgarar yfir daginn á virkum dögum og einnig heimilismenn á Hraunbúðum í tómstundastarf.
Laun skv kjarasamningum viðkomandi við samband íslenskra sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir Sólrún Gunnarsdóttir deildarstjóri í málefnum aldraðra á Hraunbúðum í síma 488 2602 eða á
Netfangið hraunbudir@vestmannaeyjar.is. Umsóknir óskast sendar á netfangið.