Fara í efni
08.09.2019 Fréttir

Skemmtileg og gefandi vinna í heimaþjónustu Vestmannaeyja

Óskum eftir starfsfólki í heimaþjónustu hjá Vestmannaeyjabæ. Störfin fela í sér aðstoð við einstaklinga á heimilum þeirra s.s persónulegan stuðning, aðstoð við innkaup, félagslegt innlit, þrif og annað sem fellur undir félagslega heimaþjónustu. 

Deildu

Störfin krefjast sjálfstæðra vinnubragða, vandvirkni og stundvísi og góðrar hæfni í mannlegum samskiptum. Um er að ræða dagvinnu og /eða kvöldvinnu

Allar frekari upplýsingar veitir Ásta Halldórsdóttir deildarstjóri í heimaþjónustu í síma 488-2607 asta@vestmannaeyjar.is og Sólrún Erla Gunnnarsdóttir Deildarstjóri í öldrunarmálum í síma 488-2602 solrun@vestmannaeyjar.is .

Umsóknir óskast sendar á rafrænu formi á ofangreind netföng , einnig er hægt að sækja um hjá Ástu og Sólrúnu á Hraunbúðum . Umsóknarfrestur er til 12 . september 2019.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambandi íslenskra sveitarfélaga .