Fara í efni
01.07.2026 Fréttir

Skapandi útinám á Kirkjugerði

Deildu

Börn á elstu deildum leikskólans Kirkjugerðis vinna þessa dagana að spennandi og uppbyggilegu verkefni á útinámssvæði Vestmannaeyjabæjar í gamla hrauninu. Markmið verkefnisins er að efla útinám og sköpun í náttúrulegu umhverfi, auk þess að bæta og hlúa að svæðinu svo það nýtist sem best til náms og leikja.

Sem hluti af verkefninu hafa börnin, með leiðsögn starfsfólks, verið að byggja kofa á svæðinu. Nú þegar eru orðnir til nokkrir myndarlegir kofar sem bera vitni um hugmyndaflug, samvinnu og dugnað barnanna. Verkefnið hefur reynst bæði lærdómsríkt og skemmtilegt, þar sem börnin fá tækifæri til að takast á við áskoranir, æfa sig í lausnaleit og kynnast náttúrunni á eigin forsendum.

Undanfarið hefur þó borið á því að einstaklingar hafi heimsótt svæðið og skilið eftir sig rusl, þar á meðal brotnar flöskur, auk þess sem reykingar hafa átt sér stað á svæðinu. Slík umgengni getur skapað hættulegar aðstæður, sérstaklega fyrir börnin sem sækja svæðið reglulega. 

Af því tilefni er íbúum og gestum Vestmannaeyja vinsamlegast bent á mikilvægi þess að ganga vel um svæðið. Svæðið er opið öllum og býður upp á skemmtilega möguleika til útivistar og náttúruupplifunar, en það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að halda því hreinu og öruggu.

Við hvetjum alla sem heimsækja svæðið til að ganga frá eftir sig, taka með sér rusl og sýna tillitssemi svo tryggja megi að svæðið haldist áfram öruggt og aðlaðandi fyrir börn og fullorðna.