Fara í efni
12.02.2008 Fréttir

Sjónarhóll í Vestmannaeyjum

Sjónarhóll er ráðgjafarmiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir. Til Sjónarhóls leita fjölskyldur
Deildu

Sjónarhóll er ráðgjafarmiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir. Til Sjónarhóls leita fjölskyldur með börn sín á ýmsum aldri og með margvísleg vandamál. Þar getur verið um að ræða vandamál tengd skóla, skort á stuðningsúrræðum, félagsleg vandamál og margt fleira.

Þjónusta Sjónarhóls er fyrir allt landið og er mikil áhersla lögð á að hingað geti allir leitað. Þjónustan er endurgjaldslaus og ekki er þörf á tilvísun eða greiningu. Á Sjónarhóli starfa ráðgjafar með foreldrum á þeirra forsendum, með það að markmiði að leita lausna á vandamálunum og styðja við bakið á foreldrum á þeirri vegferð.

Miðvikudaginn 20. febrúar n.k. verða ráðgjafar Sjónarhóls staddir í Vestmannaeyjum og verða með viðtalsaðstöðu í skammtímavistuninni Búhamri (Búhamri 17). Hægt er að panta tíma hjá ráðgjafa í síma 535-1900.